Úti í snjónum
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Hópurinn, Lausnaleit, Náttúran, Áskoranir, Líkaminn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið„Úti í snjónum“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Taka þátt í ferð þar sem gist er minnst eina nótt í snjó. Það fer eftir því hvert og hvenær farið er, hvað í því felst. Það er t.d. hægt að ganga, hjóla, klifra, sigla, róa, skíða eða skauta.
• Taka virkan þátt í undirbúningi, t.d. setja saman útbúnaðarlista, velja leið, ferðamáta, gististað og matseðil.
• Endurmetið hvernig til tókst með öllum hópnum
Lýsing:
Ein af áskorunum skátastarfs er að ferðast og upplifa ævintýri. Með því að vinna að þessu færnimerki færðu tækifæri til að ferðast í snjó, taka þátt í undirbúningi og meta hvernig gekk.








